Athugið!

Efni síðunnar er með öllu óheimilt að afrita, fjölfalda, gefa út, eða lesa upp opinberlega, nema með leyfi höfundar.
Finni einhver hjá sér knýjandi þörf til þess að brjóta gegn þessu, er sá hinn sami beðinn um að sjá sóma sinn í að nafngreina höfund og sleppa því algjörlega nýta verkið sem sitt eigið.
Öllum er velkomið að benda öðrum að kíkja inn á síðuna, sjái þeir eitthvað sniðugt eða áhugavert. Hlekknum má dreifa að vild.

Þetta er ekki flókið. Þetta er MITT dót og þú mátt ekki leika þér með það án þess að fá leyfi hjá mér. Þér er samt velkomið að horfa á það og segja öllum vinum þínum frá því.

-Guðjón (höfundur efnis á síðunni)

Auglýsing

Könnun

Myndir þú kaupa bók eftir mig?

Þangað til

Innskráningar kubbur

Leit

Prófíll

  • Nafn: Guðjón Bjarni Ævarsson
  • Staður: Árborg
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Á föstu

Risvandamál

23. desember 2008 klukkan 16:14
Ég átti lengi við vandamál að stríða, svokallað risvandamál. Þetta vandamál háði mér mikið, ég skammaðist mín og mér fannst eins og allir vissu hvað var að mér bara með því einu að líta á mig. Smátt og smátt dró ég mig úr öllu félagslífi og fór helst ekki úr húsi nema rétt til þess að ná í nauðsynjavörur og mæta í vinnu.

Vinir mínir tóku eftir þessari breytingu á mér og ég sá að þeir höfðu áhyggjur af mér, en þar sem þetta er fremur viðkvæmt og persónulegt vandamál þá, af eðlilegum ástæðum, forðuðust þeir að minnast á þetta.

Um það bil sjö árum eftir að þessa vandamáls varð vart hjá mér og það búið að hafa alvarleg áhrif á líf mitt, þá kom besti vinur minn til mín og sagði við mig að nú skildum við vinna markvisst að því að leysa þetta vandamál.

Og það gerðum við, fyrst skoðuðum við vandann og fundum út í sameiningu hvað það var sem þurfti að leggja áherslu á og á þessum tíma lærðum við heilmikið um hvorn annan, hvað við getum, þolum og viljum.

Meðal þess sem ég þurfti að gera var að átta mig á að það er aldrei nein pressa á mér, þegar stundin kemur, þá á ég að geta slakað á og notið stundarinnar. Þetta lærði ég.

Og nú er ég ekki lengur hræddur við að fara upp á háaloft.

 

-Guðjón

Guðjón Bjarni Ævarsson

Skrifa athugasemd