HFF
12. janúar 2009 klukkan 02:10
Ljóðið heitir HFF, það stendur skýrum stöfum í því hvað það þýðir, það þarf bara að sjá það. Njótið vel... Eða ekki...
HFF
Hrópa, er að mótmæla
Eins og allir aðrir.
Loga af heift,
Vind upp á mig og stari beint
Í augu fórnarlambs
Tárin renna stríðum straumum
Inn fyrir kragann á peysunni
Sem keypt var á útsölu.
Fjandinn hirði ykkur!
Orgar gamall gráhærður maður og
Kastar steini í átt að húsinu.
Kiknar svo í hnjánum þegar eitthvað
Innvortis gefur eftir.
Nokkrir
Gjóa augum á hann.
Forða mér í snarhasti,
Orðinn hræddur um sjálfan mig.
Kem mér inn úr
Kuldanum.
-Guðjón
HFF
Hrópa, er að mótmæla
Eins og allir aðrir.
Loga af heift,
Vind upp á mig og stari beint
Í augu fórnarlambs
Tárin renna stríðum straumum
Inn fyrir kragann á peysunni
Sem keypt var á útsölu.
Fjandinn hirði ykkur!
Orgar gamall gráhærður maður og
Kastar steini í átt að húsinu.
Kiknar svo í hnjánum þegar eitthvað
Innvortis gefur eftir.
Nokkrir
Gjóa augum á hann.
Forða mér í snarhasti,
Orðinn hræddur um sjálfan mig.
Kem mér inn úr
Kuldanum.
-Guðjón
Guðjón Bjarni Ævarsson
