Snæland
Það er kannski við hæfi, þar sem svo langur tími er liðinn
síðan síðan var uppfærð að það sé gert hér með. Það er reyndar bölvuð lygi að
það sé langt síðan ég uppfærði síðast, ég skipti um banner fyrir stuttu.
Nú, eins og áður, lendi ég í krísu þegar kemur að því að
blogga. Mig langar, svona til tilbreytingar, að skrifa í óbundnu máli.
En hvað?
Ó, hvað?
Hvað á að taka til umfjöllunar?
Hmm...
Ég gæti sagt frá því þegar við Aron fórum á Snæland í gær.
Það er svosem ekki í frásögur færandi, nema fyrir það leiti að skondið atvik
átti sér stað.
Til þess að þú, kæri lesandi, sért með á nótunum verð ég
líklega að segja þér frá því að Aron keyrir um á grænum Toyota Avensis og...
ja... við skulum orða það þannig að það sé liðinn smá tími síðan síðast var
tekið til í honum, t.d. má finna heilt golfsett í aftursætinu, og fer það ekki
framhjá neinum. (eða, það hélt ég)
Nú, þar sem við stöndum inni á Snæland og bíðum, þá kemur
keyrandi að nemandi í ökukennslu á grænum Nissan Primera. Hann stoppar fyrir
framan Snæland, svona um það bil tveimur stæðum frá bílnum hans Arons. Út úr
bílnum stígur ökukennari og nemandi hans með. Þeir ganga saman inn í sjoppuna,
kennarinn fer á klósettið á meðan nemandinn kaupir sér samloku og kók.
Þegar kennarinn kemur af klósettinu ganga þeir út, nemandinn
nokkuð á undan. Augnabliki síðar sný ég mér við og verð frekar hissa þegar ég
sé nemandann setjast inn í bílinn hans Arons. Ég pikka í öxlina á Aroni og hann
snýr sér við. Svo stöndum við forviða og horfum á nemandann koma sér fyrir í
sætinu í rólegheitunum, setja samlokuna og kókið í aftursætið (þar sem
GOLFSETTIÐ var), spenna á sig beltið og bíða eftir kennaranum. Kennarinn gekk
út úr sjoppunni, gengur farþegamegin að bílnum hans Arons, teygir fram höndina
til þess að opna, en hikar og hugsar málið. Svo lítur hann upp og skoðar
bílinn, áttar sig greinilega, bankar í rúðuna og bendir nemandanum á að þeir
eigi að fara í hinn bílinn. Nemandinn stígur út úr bílnum hans Arons, lítur
skömmustulega í kringum sig og gengur svo að ökunámsprimerunni og endurtekur
þar leikinn. Sest í rólegheitum, setur kókið og samlokuna í aftursætið, spennir
á sig beltið. OG gat meira að segja sett í gang, af því að hann hafði lyklana
að þessum bíl.
Gott í bili? Já!
-Guðjón.
