Athugið!

Efni síðunnar er með öllu óheimilt að afrita, fjölfalda, gefa út, eða lesa upp opinberlega, nema með leyfi höfundar.
Finni einhver hjá sér knýjandi þörf til þess að brjóta gegn þessu, er sá hinn sami beðinn um að sjá sóma sinn í að nafngreina höfund og sleppa því algjörlega nýta verkið sem sitt eigið.
Öllum er velkomið að benda öðrum að kíkja inn á síðuna, sjái þeir eitthvað sniðugt eða áhugavert. Hlekknum má dreifa að vild.

Þetta er ekki flókið. Þetta er MITT dót og þú mátt ekki leika þér með það án þess að fá leyfi hjá mér. Þér er samt velkomið að horfa á það og segja öllum vinum þínum frá því.

-Guðjón (höfundur efnis á síðunni)

Auglýsing

Könnun

Myndir þú kaupa bók eftir mig?

Þangað til

Innskráningar kubbur

Leit

Prófíll

  • Nafn: Guðjón Bjarni Ævarsson
  • Staður: Árborg
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Á föstu

Amazing Grace/ Þrá

16. apríl 2009 klukkan 22:00
Fyrir stuttu (og þó) gerði ég íslenskan texta við lagið "Hallelujah." Fyrir styttra lék ég sama leik og gerði íslenskan texta við lagið Amazing Grace. Það birtist hér með.




Þrá

Ég sit og meitla staf í stein,
einn staf um huga minn.
því ég og þú á kvöldin ein,
eigum sama hjartsláttinn.

Ó, ástin mín, ég bið þig nú,
að fara ei mér frá.
Er ég er hér og ekki þú,
er tilveran mín grá.  

Ég veit að það sem þú vilt síst,
er að ég finni til.
Þú kemur aftur, það er víst,
með hlýjan faðm og yl.  

Ég hjúfra mig í fangi þér,
og finn hvað allt er rótt.
Ég sofna vært, því þú ert hér,
og passar mig í nótt. 

-Guðjón Bjarni 
Guðjón Bjarni Ævarsson
Sæll Guðjón. Ég er mjög hrifinn af textanum sem þú samdir við Hallelúja.
Ertu til í að hringja í mig við tækifæri 554 1620 eða 895 9200
06. maí 2009 klukkan 14:11

Skrifa athugasemd