Þetta eru nokkrar staðreyndir um hinn merka mann Chuck Norris, alls ekki allar. Þýðing úr ensku er algjörlega mitt verk.
· Það getur verið að fólkið í Pamplona á Spáni hlaupi í burtu frá nautum. En nautin eru að hlaupa í burtu frá Chuck Norris.
· Chuck Norris notar piparúða til þess að krydda steikurnar sínar.
· Chuck Norris hringsparkaði einu sinni svo hratt að fóturinn á honum ferðaðist aftur í tíma og drap Amelia Earhart þegar hún flaug yfir Kyrrahafið.
· Kornhringir [e.Crop circles] eru aðferð Chuck Norris til að segja heiminum að stundum þarf kornplantan að leggjast niður.
· Chuck Norris er fimm metra hár, vegur tvö tonn, spýr eldi, getur borðað hamar og verið skotinn með haglabyssu án þess að detta.
· Kínamúrinn var upprunalega byggður til þess að halda Chuck Norris úti. Það mistókst herfilega.
· Flestir hafa 23 pör af litningum. Chuck Norris hefur 72… Og þau eru öll eitruð.
· Ef þú spyrð Chuck Norris hvað klukkan sé svarar hann þér alltaf: ,,Tvær sekúndur í.. “ Þegar þú spyrð ,,Tvær sekúndur í hvað?” hringsparkar hann í andlitið á þér.
· Chuck Norris ekur um á ísbíl þöktum mannabeinum.
· Þegar Chuck Norris skilar inn skattaskýrslunni sendir hann inn autt eyðublað og mynd af sjálfum sér í hnipri og tilbúnum til árásar. Chuck Norris hefur ekki þurft að borga skatta. Aldrei.
· Fljótlegasta leiðin að hjarta mannsins er með hnefa Chuck Norris.
· Chuck Norris fann upp hina þekktu Kentucky Fried Chicken leyniuppskrift með ellefu jurtum og kryddum. En enginn talar um tólfta hráefnið: Ótta.
· CNN var upprunalega stofnað sem "Chuck Norris Network" til að flytja mönnum rauntíma rassaspörk [Ass-Kicking]
· Chuck Norris getur unnið leik í “Tengja Fjóra” með aðeins þremur aðgerðum.
· Það er engin þróunarkenning. Bara listi yfir þau dýr sem Chuck Norris leyfir að lifa.
· Chuck Norris át einu sinni þrjár tveggja kílóa steikur á klukkutíma. Hann notaði fyrstu 45 mínúturnar í að hafa samfarir við þjónustustúlkuna.
· Hvað fór í gegnum huga allra fórnarlamba Chuck Norris áður en þau dóu? Skórinn hans.
· Chuck Norris er eini maðurinn sem hefur unnið múrsteinsvegg í tennis.
· Lögreglan í Bandaríkjunum kalla alla sem ráðast á Chuck Norris “Code 45-11” [sjálfsmorð]
· Chuck Norris strokkar ekki smjör. Hann hringsparkar kýrnar og smjörið kemur strax úr þeim.
· Chuck Norris þvær ekki fötin sín, hann leysir þau upp.
· Merki um fatlaðrastæði stendur ekki fyrir að tiltekið stæði sé fyrir fatlaða einstaklinga. Það er í raun aðvörun, þetta stæði tilheyrir Chuck Norris og þú verður fatlaður ef þú leggur þar.
· Einhverntíma náðist myndband af Chuck Norris verða reiður, það var kallað “Walker: Texas Chain Saw Massacre.”
· Ef þú stafar Chuck Norris í Scrabble, þá vinnurðu. Að eilífu
· Chuck Norris átti upprunalega að vera í Tekken4 en var fjarlægður af tilraunaspilurum vegna þess að það var alveg sama á hvaða takka var ýtt hann gerði alltaf hringspark. Þegar hann var spurður um þennan galla sagði hann: ,,Þetta er enginn galli…”
· Plataðu mig einu sinni og skammastu þín. Plataðu Chuck Norris einu sinni og þú færð hringspark í andlitið.
· Byrjunaratriðið í kvikmyndinni "Saving Private Ryan" er lauslega byggt á brenniboltaleik sem Chuck Norris fór í í öðrum bekk.
· Chuck Norris skaut einu sinni niður þýska orrustuflaug með því að benda á hana og kalla ”BANG!”
· Chuck Norris hefur tvær hraðastillingar: Ganga og Drepa.
· Einhver sagði Chuck Norris hringspark væri ekki besta leiðin til þess að sparka í fólk. Sagnfræðingar eru sammála um að það séu stærstu mistök sem nokkur maður hefur gert.
· Bandaríkin eru ekki lýðveldi, þau eru Chuckveldi.
· Teenage Mutant Ninja Turtles er byggt á sannri sögu: Chuck Norris gleypti einu sinni skjaldböku og þegar hann skeit henni var hún tveggja metra há og kunni karate
· Chuck Norris er ekki pakkaður eins og hestur... hestar eru pakkaðir eins og Chuck Norris.
· Hraðar en byssukúla... Öflugri en járnbrautarlest... að geta stokkið yfir háhýsi... já, þetta eru sumar af upphitunum Chuck Norris...
· Í Biblíunni breytti Jesú vatni í vín. En Chuck Norris breytti þessu sama vatni í bjór.
· Chuck Norris getur lamið þig svo fast að það breyti DNA uppbyggingu þinni. Eftir nokkra áratugi munu afkomendur þínir hnykkja til höfðinu og öskra: “Hvur fjandinn var þetta?!?”
· Tíminn bíður ekki eftir neinum manni.. Nema þessi maður sé Chuck Norris.
· Chuck Norris uppgvötaði nýja afstæðiskenningu sem lagði til að til væru fleiri alheimar þar sem Chuck Norris er ennþá harðari gaur en hér. Þegar Albert Einstein uppgvötaði þetta sama og gerði opinbert, hringsparkaði Chuck Norris í andlitið á honum. Við þekkjum Albert Einstein í dag sem Stephen Hawking.
· Chuck Norris fer ekki í sturtu... Hann fer í blóðbað.
· Í venjulegri stofu eru 1242 hlutir sem Chuck Norris getur notað til að drepa þig. Þar með talið herbergið sjálft.
· Í alfræðiorðabókum hefur “táraslóð” verið skilgreind sem “þar sem Chuck Norris hefur gengið um.”
· Chuck Norris tepokar ekki dömurnar... Hann kartöflusekkjar þær.
· Plútó er í raun hópur Breskra hermanna síðan í Amerísku byltingunni sem Chuck Norris hringsparkaði í andlitið.
· Þegar Chuck Norris fer og gefur blóð neitar hann nálinni og biður um skammbyssu og fötu.
· Það eru ekki sterar í íþróttum, bara fólk sem Chuck Norris hefur andað á.
· Chuck Norris skoraði einu sinni á Lance Armstrong í keppni um hver hefði flest eistu. Chuck Norris vann. Munurinn var 5.
· Chuck Norris var fjórði vitringurinn sem gaf Jesú gjöf skeggsins, og hana bar hann allt til dauða. Hinir vitringarnir voru svo öfundsjúkir að þeir létu þurrka Chuck Norris úr Biblíunni. Allir þrír létust skömmu síðar hringsparks-tengdum dauða.
· Chuck Norris skiptir um ham tvisvar á ári.
· Þegar Chuck Norris hringir í 900 númer er hann ekki rukkaður. Hann heldur símanum uppi og peningar falla út.
· Chuck Norris át einu sinni heila köku áður en vinur hans náði að segja honum að það var fatafella í henni.
· Sumir borða froskalappir. Chuck Norris borðar eðlulappir. Þess vegna, snákar.
· Það eru engir kynþættir, bara lönd með fólki sem Chuck Norris hefur barið í mismunandi litbrigði af svörtum og bláum.
· Chuck Norris getur ekki klárað “litað eftir númerum” þar sem allir pennarnir hans eru fylltir með blóði fórnarlamba hans. Því miður er allt blóð dökk-rautt.
· Hringspörk Chuck Norris eru aðalaftökuaðferðin í 16 ríkjum Bandaríkjanna.
· Þegar Chuck Norris dettur í vatn verður hann ekki votur. Vatnið verður Chuck Norris-að.
· Vísindamenn hafa reiknað út að orka Miklahvells hafi verið um það bil 1 CNHs (Chuck Norris Hringsparpk)
· Hús Chuck Norris hefur engar dyr, bara veggi sem hann gengur í gegnum.
· Þegar Chuck Norris hefur samfarir við karlmann er það ekki vegna þess að hann er hommi. Hann er bara búinn með konurnar.
· Chuck Norris skrifar í raun ekki bækur, orðin raða sér sjálf saman af einskærum ótta.
· Til að heiðra Chuck Norris hafa allir McDonald’s staðir í Texas eina stærð sem er stærri en super-size. Þú biður bara um að fá borgaran Chucksized.
· Chuck Norris GETUR trúað því að það sé ekki smjör.
· Ef hringspark Chuck Norris væri virkjað gæti það svalað allri orkuþörf Ástralíu í 44 mínútur.
· Chuck Norris getur deilt með núll.
· Grasið er alltaf grænna hinum megin, nema Chuck Norris hafi verið þar. Sé það tilfellið er mjög líklegt að grasið sé gegndrepa af blóði og tárum.
· Mynd segir meira en þúsund orð. Nema myndin sé af Chuck Norris.
· Þriðja lögmál Newtons er rangt. Þó að það segi að fyrir hverja aðgerð sé alltaf gagnkvæm mótaðgerð, þá er bara engin mótaðgerð við hringsparki frá Chuck Norris.
· Chuck Norris fan upp sína eigin útgáfu af karate. Hún er Chuck-Will-Kill.
· Þegar þáttur af Walker, Texas Ranger var sýndur í Frakklandi, gáfust Frakkar upp fyrir Chuck Norris, bara til að vera öruggir.
· Chuck Norris getur brætt títaníum á meðan hann pissar.
· Þegar Chuck Norris talar, hlusta allir. Og deyja.
· Þegar Steven Seagal drepur ninja tekur hann búning hennar. Þegar Chuck Norris drepur ninja, þá notar hann hvern einasta part hennar.
· Wilt Chamberlain kveðst hafa sofið hjá meira en 20.000 konum á lífstíð sinni. Chuck Norris kallar það “lélegan þriðjudag”.
· Chuck Norris rakar sig ekki, hann sparkar í andlitið á sjálfum sér. Það eina sem ræður við Chuck Norris er Chuck Norris.
· Hjá flestum er vinstra eistað stærra en hitt. Hjá Chuck Norris eru bæði stærra en hitt.
· Þegar þú tekur samræmdu prófin skaltu skrifa Chuck Norris við allar spurningar, þú munt fá meira en 10.
· Chuck Norris fann upp svartan. Í raun fann Chuck Norris upp allt litrófið. Nema bleikan. Tom Cruise fann upp bleikan.
· Ef þú ert Chuck Norris er eitthvað+eitthvað = 1. Eitt hringspark í andlitið.
· Chuck Norris hefur besta pókerfés í heiminum. Hann vann heimsmeistaramótið í póker árið 1983, þrátt fyrir að hafa bara jóker, “frítt úr fangelsi” Monopoly spil, tígul tvist, spaða sjöu og grænt UNO spil númer 4.
· Á afmælinu sínu velur Chuck Norris handahófskennt eitt barn til þess að vera hent í sólina.
· Chuck Norris kastar ekki upp ef hann drekur of mikið. Chuck Norris kastar niður!
· Í upphafi var ekkert... Svo kom Chuck Norris og hringsparkaði þetta ekkert í andlitið og sagði “get a job”.. Þetta er saga alheimsins.
· Chuck Norris hefur 12 tungl. Eitt þessara tungla er jörðin.
· Chuck Norris malar kaffið sitt með tönnunum og sýður vatnið með reiði sinni.
· Fornleifafræðingar grófu upp gamla enska orðabók frá árinu 1236. hún skilgreindi orðið “fórnarlamb” sem “sá sem hefur fyrirhitt Chuck Norris”.
· Chuck Norris pantaði Big Mac á Burger King. Og fékk hann.
· Chuck Norris og Mr. T gengu inn á bar. Barnum var umsvifalaust eytt af yfirborði jarðar, þar sem svona mikið magn af ógn rúmast ekki í einni byggingu.
· Ef þú gúglar “Chuck Norris tekinn í bakaríið” þá færðu engar niðurstöður. Það bara gerist ekki.
· Chuck Norris getur drukkið 4 lítra af mjólk á 37 sekúndum.
· Óþekkt læknisfræðileg staðreynd: Chuck Norris fann upp keisaraskurðinn þegar hann hringsparkaði sér leið úr maga mömmu sinnar.
· Chuck Norris nær ekki fellu í keilu. Hann fellir eina keilu og hinar níu falla í yfirlið.
· Sjónvarpsþátturinn Survivor snerist upprunalega um það að setja fólk á eyju með Chuck Norris. Það voru engir eftirlifendur, og enginn er nógu hugrakkur til að fara og sækja myndefnið.
· Það tekur Chuk Norris 20 mínútur að horfa á 60 mínútur.
· Sagt er að ef þú deyrð í draumi þá deyjir þú í hinu raunverulega lífi líka. Í raun er það þannig að ef þig dreymir dauða, þá mun Chuck Norris finna þig og drepa.
· Chuck Norris ber mikla og djúpa virðingu fyrir hinu mannlega lífi.... Nema það standi í vegi fyrir honum.
· Bermúda þríhyrningurinn var ferhyrningur þar til Chuck Norris hringsparkaði eitt hornið af.
· Það eru enging gereyðingarvopn í Írak. Chuck Norris býr í Oklahoma.
· Chuck Norris trúir ekki á Þýskaland.
· Þegar Chuck Norris er á mannmörgum stað gengur hann ekki á milli fólks. Hann gengur í gegnum það.
· Chuck Norris tók einu sinni heilt glas af svefnpillum. Þær létu hann blikka augunum.
· James Cameron ætlaði að láta Chuck Norris vera Tortímandann. En hann áttaði sig á því að þá yrði myndin heimildamynd, svo hann lét Arnold Schwarzenegger hafa hlutverkið.
· Chuck Norris GETUR snert MC Hammer.
· Fyrir þúsundum ára rakst Chuck Norris á björn. Björninn var svo hræddur að hann flúði á norðurpólinn. Hann var líka svo hræddur að allir afkomendur hans í dag hafa hvít hár.
· Chuck Norris spilaði Rússneska Rúllettu með fullhlaðinni byssu og vann.
· Það þarf 14 brúðustjórnendur til þess að láta Chuck Norris brosa. En bara 2 til að láta hann eyðileggja munaðarleysingjahæli..
· Chuck Norris ábyrgur fyrir offjölgun fólks í Kína. Hann hélt einu sinni Karate námskeið í Peking og allar konur í 2.000 radíus þar frá urðu óléttar samstundis.
· Sumir klæðast Superman náttfötum. Superman klæðist Chuck Norris náttfötum.
· Með því einu að toga í hvorn enda getur Chuck Norris breytt demöntum aftur í kol.
Þegar Chuck Norris gerir armbeygjur er hann ekki að lyfta sjálfum sér upp. Hann er að ýta jörðinni niður.
