9. nóvember 1989 var stór dagur í mannkynssögunni. Margir halda að það hafi verið vegna þess að Berlínarmúrinn féll, og það er svo sem ekkert vitlaust, en það var annað og merkilegra sem gerðist á lítilli eyju í norðri. Á þessum degi fæddust hvorki meira né minna en 12 börn. Og eitt af þessum börnum var Guðjón Bjarni, fyrsta barn Ævars og Kristínar.
Guðjón Bjarni fæddist klukkan 13:15 á fæðingardeild Landspítalans með aðstoð læknisins Steinunnar Hallgrímsdóttur, ljósmóðurinnar Gígju Sveinsdóttur og ljósmóðurnemans Helgu Gottfreðsdóttur. Drengurinn vóg 3540 grömm og mældist 53 sentimetrar. Hárið var dökkt og augun blá, börn gerðust vart fallegri á þessum tíma.
Skírn fór fram í Selfosskirkju þann 25. desember 1989 og var það Sigurður Sigurðarson sem skírði. Skírnarvottar voru Guðrún Jónsdóttir og Gerður Guðjónsdóttir. Guðjón Bjarni svaf allan tímann á meðan athöfnin stóð yfir.
Fljótlega eftir að hann varð átta vikna fór hann að hjala, og um átta mánaða kom alvöru ,,mamma” og fljótlega eitthvert ,,baba”-hljóð. 16. janúar 1991 kom svo alvöru ,,Pabbi”. Tæplega fimmtán mánaða sagði hann svo ,,afi” og var allt mögulegt kallað afi. 15. júlí 1991 sagði hann ,,Dujón” og í lok ágúst bættist ,,Batni” við.
Tæplega tveggja ára sagði Guðjón Bjarni pabba sínum sögu sem er svona: ,,Einu sinni var lítill strákur, svo tók mamma strákinn. Allt búið.”
Auðvitað fór Guðjón Bjarni á leikskóla, og svo í grunnskóla, en hann gekk í Sandvíkurskóla á Selfossi alveg þangað til í sjötta bekk, en þá skipti hann um skóla og fór í Laugalandsskóla í Holtum þar sem hann kláraði grunnskólagöngu sína með frábæru fólki. Þegar grunnskólanum lauk hóf Guðjón Bjarni nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands og þar situr hann enn á skólabekk.
Guðjón Bjarni hefur gert ýmislegt og upplifað margt um ævina og tekur því varla að telja upp allt hér, en þó ber að nefna að þann 5. júlí 1995 eignaðist hann litla systur sem honum þykkir ofboðslega vænt um og er tilbúinn til þess að gera allt fyrir.
Þeim sem hafa áhuga á að kynnast þessum unga dreng betur er bent á að tala bara við hann í staðin fyrir að leita sér upplýsinga á netinu, því við vitum öll hve ótraustar þær upplýsingar eru oft á tíðum.
